Hjartanlega velkominn á grallarasíðuna okkar

Við heitum Andri Jökull, Arnar Snær, Adam Örn og Aron Orri og erum sko sætustu strákarnir í öllum heiminum (allavega finnst mömmu það)

verið að reyna að ná mynd af öllum!!



- Ekki gleyma að skrifa í gestabókina -

Andri Jökull er stóri bróðir.
Ég fæddist 04. febrúar 2000. Ég kom í heiminn kl 12:39 á föstudegi eftir langa og stranga nótt. En þegar ég kom var ég eins og nýklipptur ungur herra og ekki með eina krumpu í andlitinu. Ég var og er enn dökkærður með blá augu og vó 4,100 gr og var 53 cm.

Arnar Snær er litli/stóri bróðir.
Ég fæddist 14. mars 2003. Ég kom í heiminn kl 11:45 líka á föstudegi og ég var sko að flýta mér að koma, ég tók ekki nema svona 3 klukkutíma í þetta enda er ég líka alltaf að drífa mig og stundum á ég það til að fara á undan sjálfum mér og þá getur allt farið í flækju. Ég fæddist með þetta rosa flotta rauða hár og blá augu ég vó 4,670 gr og var 53,5 cm.

Adam Örn er líka litli/stóri bróðir.
Ég fæddist 19.september 2006. Ég kom í heiminn kl 09:54 á þriðjudegi, ég fæddist í Englandi. Mamma og pabbi segja að ég líkist Arnari í svip en hef litarhaft Andra bróðurs þannig að ég er sko algjör draumaprins og rosa sætur. Ég er með dökkt hár og blá augu ég vó 4,230 gr en í Englandi er ekki mælt hvað maður er langur en mamma reyndi og fékk út 53 cm þannig að ég var eitthvað svoleiðis

Aron Orri er sá nýjast og yngsti.
Ég fæddist 25.september 2010. Ég kom í heiminn kl 17:07 á laugardegi, ég fæddist líka í Englandi eins og Adam Örn bróðir minn. Ég fæddist með rautt hár og blá augu og vó 3.815 gr, mamma mældi mig ca 50cm. Mömmu og pabba fannst ég pínku lítill og auðvitað sætastur í heiminum..